Laugardagur, 10. janúar 2009
Að kveðja jólin
Oftast hef ég tekið niður jólaskrautið strax daginn eftir þrettándann, en aldrei eins seint og nú. Það er tíundi janúar í dag og ég er að taka saman alla fallegu jólahlutina mína og setja niður í kassa. Sumir geta ekki beðið með að taka niður þetta ,, drasl.. en ekki ég. Það verður allt svo tómt og hversdagslegt. Nú finnst mér jafnvel erfiðara að pakka jólunum niður. Þegar aðventan gekk í garð í síðasta mánuði voru margir þegar búnir að setja upp ljós og skeyta fyrr en venjulega. Ég líka. Það var bara þannig ástand í þjóðfélaginu að aðventan var kærkomin tími til að fá haldreipi í fasmótaða siði og venjur. Að allt væri eins og var áður. En nú er komið nýtt ár, nýr tími, ný gildi. Ég vona að nýtt ár beri í skauti sínu gæfu fyrir okkur öll. Að okkur takist að byggja upp sjálfsmynd okkar sem þjóðar. Að ráðamenn setji í forgang að sameina okkur en ekki sundra. Að skjaldborg verði slegið um heimilin í landinu, því börnin okkar og barnabörn eiga það skilið að finna að þau eigi öruggt skjól á viðkvæmasta aldurskeiði lífsins.
Ég kveð jólin með söknuði, en veit jafnvel að þau koma aftur í desember, með sinn frið, gleði og ljós. Ég hlakka til.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 10. janúar 2009
Þórunn Hannesdóttir Scheving
Ævisaga Jóns Steingrímssonar er merkileg heimild samtímamanns um Skaftárelda og móðuharðindin. Ég glugga stundum í þá bók og líka fyrir það, að eiginkona hans, Þórunn Hannesdóttir Scheving er formóðir mín. Jón lýsir hreinskilningslega í bókinni kynnum þeirra og ástum, en þau kynntust þegar Jón gerðist djákni á Reynistað. Þá var Þórunn gift klausturhaldaranum Jóni Vigfússyni, sem samkvæmt Jóni Steingrímssyni, barði konu sína iðulega í drykkjuköstum sínum, en var ljúfur sem lamb þess á milli. Minnir það óneitanlega á örlög annarrar formóður minnar í föðurætt, Þórdísi Jónsdóttur í Bræðratungu. En hún flúði ósjaldan undan junkernum Magnúsi í Bræðratungu í Skálholt til systur sinnar, er drykkjutúrar ans stóðu yfir.
Þórunn Hannesdóttir Scheving var fædd 28.08. 1718 og var stórættuð. Hún var dóttir Hannesar Lauritsonar Scheving, sýslumanns á Munkaþverá og konu hans Jórunnar Steinsdóttur, biskups á Hólum. Þótti mörgum hún hafa tekið niður fyrir sig er hún giftist Jóni Steingrímssyni.Jón Vigfússon lést er Þórunn bar yngsta barn þeirra undir belti og tók Jón Steingrímsson að sér að hugga hana, að ráði þjónustustúlku sinnar eins og segir í ævisögu hans. Þórunn átti 3 börn með Jóni Vigfússyni er upp komust. Yngsta barnið Karítas Jónsdóttir Scheving, sem fæddist eftir dauða föður síns, flutti með móður sinni og Jóni Steingrímssyni, suður að Prestbakka eftir giftingu þeirra. Jón Steingrímsson og Þórunn Hannesdóttir Scheving eignuðust 5 dætur saman og er mikill ættbogi frá þeim kominn.
Af Karítas Jónsdóttur Scheving er það að segja að hún giftist Þorsteini Eyjólfssyni á Vatnskarðshólum. En Jón Steingrímsson segir í ævisögu sinni að hún hafi látið ,, fallerast,, með honum og það hafi valdið Þórunni konu sinni þungum raunum. En raunir Þórunnar vegna hinnar ættgöfugu Karítasar voru auðvitað þær að henni var ætlað annað mannsefni en venjulegan bóndason. Karítas Scheving var í föðurætt, komin af Jóni Vigfússyni Hólabiskup f. 1643 og í móðurætt af Jórunni Steinsdóttur, biskups. En hjónaband Karítasar og Þorsteins var farsælt, og áttu þau 9 börn, þar á meðal Karítas Þorsteinsdóttur f. 1788 er giftist Jakobi Þorsteinssyni á Brekkum.Sonur þeirra var Þorstein Jakobsson f.1812 bóndi að Fjósum í Mýrdal er kvæntist Helgu Þórðardóttur Thorlacius. Þeirra dóttir var Guðrún Þorsteinsdóttir f.1849 langamma mín.Þess má geta að Jón Steingrímsson var fæddur 10.09.1728 ef einhver vil rekja sig saman við hann.
Vinir og fjölskylda | Breytt 15.1.2009 kl. 12:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 9. janúar 2009
Aftur til bloggheima
Í dag ákvað ég að fara að blogga aftur. Eftir rúma tvo mánuði frá því að ég lokaði blogginu mínu, finn ég að ég sakna þessarar dægradvalar, sem gaf mér margar ánægjustundir á síðasta ári. Þegar ég lokaði blogginu hurfu allar færslurnar mínar og nú byrja ég bara uppá nýtt á nýju ári. Þó ætla ég að setja inn aftur færslurnar um ættfræði og sitthvað sem ég vildi ekki henda.
Af mér er helst að frétta að ég hef haft mikið að gera í vinnunni og hún tekið mest af tíma mínum síðustu tvo mánuði ársins. Í miðjum jólaundirbúningi eða þann 17 des tókst mér að brenna nærri af mér hendina á heitri feiti og ekki í fyrsta sinn. Það þýddi að ég var frekar fötluð í öllu sem þurfti að gera. Var samt búin að pakka inn öllum jólagjöfum og skrifa á nokkur kort. Elskulegur eiginmaður minn stóð við hlið mér eins og klettur og kláraði kortin og eldhúsið varð hans heimavöllur á einum degi Jólin liðu í friði og ró og áramótin einnig. Þegar tveir dagar voru liðnir af nýja árinu tókst mér að festa mig í bakinu einhvernvegin þannig að ég var óvinnufær. Læknar halda að þetta sé klemmd taug, einhverskonar ,, hekseskud,, sem leiðir frá mjóbaki niður í fót. Ekki akkúrat sem ég þurfti á að halda eftir brunameðferðina á hendinni. Ég er þó komin til vinnu og sting við fæti og er að detoxa mig niður af Parkótin Forte átinu. Heilsugæsla Hlíðasvæðis er með stóran fæl um mig í tölvunni , bara frá 17 des til 2 jan.
Annars bara góð á föstudagskvöldi á fyrsta bloggdegi þessa árs.
Bloggar | Breytt 10.1.2009 kl. 00:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 2. janúar 2009
Haraldur Norðdahl - minning 4. apríl 2007
Vinir og fjölskylda | Breytt 10.1.2009 kl. 00:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)