Hjörtur Björnsson frá Skálabrekku í Þingvallasveit

Set hér inn minningargrein sem Ríkarður Jónsson myndhöggvari skrifaði um frænda minn Hjört Björnsson frá Skálabrekku í Þingvallasveit og birtis í Tímanum 30 apríl 1942.  Hjörtur var bróðursonur Friðriks Hanssonar langafa frá Hækingsdal í Kjós, og lést aðeins 46 ára gamall úr berklum.  Ég man eftir myndum á æskuheimili mínu af gömlu fólki í fallegum útskornum myndarömmum sem voru verk Hjartar.

Hjörtur Björnsson frá Skálabrekku var jarðsunginn í Fossvogi í gær.  Hann var fæddur á Skálabrekku í Þingvallasveit 21. mars 1896, sonur hjónanna Björns Ólafssonar og Jakobínu Þorsteinsdóttur, er bjuggu þar lengi.Hjörtur ólst upp á Skálabrekku til fullorðinsára, en réðist síðan til myndskurðarnáms hjá undirrituðum haustið     og lauk sveinsprófi eftir fjögra ára nám.  Vann hann fyrir sér á sumrum en stundaði námið á vetrum, var auk þess einn vetur í Kaupmannahöfn og lærði gibsaraiðn og að námi loknu lagði hann hvort tveggja fyrir sig jöfnum höndum, unz heilsa hans þraut.Hjörtur var óvenjulega miklum hæfileikum gæddur.  Hann var hagur vel, og listhneigður, en það var þó ekki hans sterkasta gáfa.  Aðalgáfa hans voru á sviði sögu og náttúruvísinda og að því leiti fannst mér alltaf hann vera á rangri hillu, sem kallað er.  Hann var þegar á unga aldri alveg undra fróður maður, og var fræðileikur hans yfirgripsmikill og margþættur, svo að ég minnist ekki að hafa kynnst  jafn fjölfróðum unglingi.  Hann hlýtur að hafa lesið kynstrin öll í æsku og minnið var óvenjulega skarpt.  Hann hafði einnig frábæra athyglisgáfu á öllu, sem hann heyrði og sá.  Þessum mikla fróðleik fylgdi og skemmtileg og glaðvær frásagnargáfa, blandin drjúgum skerf af kímni.  Hefi ég margra glaðra stunda að minnast frá námsárum Hjartar.  Hagmæltur var hann vel og ljóðkær, hafði næman smekk fyrir móðurmáli sínu og reyndist ritfær með ágætum, svo sem bók hans ,, Sumar á fjöllum,, ber órækan vott um.  Þar er mikinn fróðleik og ósvikna hrifningu fyrir íslenskri sveita og fjallasælu að finna, enda hafði hann sára þrá til fjallanna er mold fór að gróa, enda ferðaðist hann um fjalllendi hér sunnan og suðvestanlands eftir því sem hann frekast gat.  Það hygg ég að hafi verið hans aðalyndi og sæla þessa lífs.   Hjörtur var einnig gæddur skemmtilegum leikarahæfileikum og átti afar létt með að hafa hamskipti.Fyrir nærri heilum tug ára yfirbugaðist Hjörtur af berklaveiki, og varð hann í öll þau ár að heyja látlaust stríð við þá veiki, er loks varð honum að aldurtila hinn 25 apríl.  Öll þau ár sem Hjörtur dvaldist á heilsuhælum, fékk hann að hafa smíðakompu, þar sem hann skar út ýmsa muni, þegar heilsan leyfði og mun það hafa létt honum að verulegum mun hið æðrulausa stríð.Það var alltaf gleði og fróðleikur að návist Hjartar Björnssonar, því er söknuður að fráfalli þessa merka manns.Ríkarður Jónsson.

 


Ættfræði - framætt Guðlaugar Helgu Hafliðadóttur

Hér rek ég framætt móðurömmu minnar, Guðlaugar Helgu Hafliðadóttur f. 1877-1941 frá Sverri Sigurðarsyni Noregskonungi. 

Sverrir konungur var sonur Sigurðar ,, munns,, Haraldssonar, Noregskonungs og Gunnhildar Sigurðardóttur.  Afi Sverris var Haraldur ,,gilli,, Noregskonungur, Magnússonar, ..berfætts,, Ólafssonar Noregskonungs. 

1.  Sverrir Sigurðarson Noregskonungur f. um 1157-4.3.1202

     m. Ástríður Hróarsdóttir ( Astrid Roesdatter) hjákona.

2.  Hákon Sverrisson Noregskonungur f. um 1178

     m. Inga frá Vartegi

3.  Hákon Hákonarson (hinn gamli) Noregskonungur f.um 1204-14.12.1263

     m. Kanga hin unga (hjákona)

4.  Cecilía Hákonardóttir, síðar drottning Manar og Suðureyja ( um 1248)

     m. Herra Gregorius (Gregorius Andresson) riddari. lenndur maðr. f.um 1200

5.  Sigríður Gregoríusdóttir, kanslara og barónsfrú í Noregi f. 1240

     m. Gauti Erlingsson, kanslari Noregs og barón af Tolga

6.  Hákon Gautason, hirðmaður á Refi í Noregi (um 1260-1304)

     m.Hólmfríður Erlingsdóttir, húsfrú á Refi

7.  Margrét Hákonardóttir, prófastfrú í Björgvin í Noregi f. 1285

     m. Þorsteinn (míta) Hallgrímsson, prófastur við Postulakirkjuna í Björgvin

8.  Öndundur Þorsteinsson, að öðru leiti óþekktur f. 1315

9.  Hólmfríður Öndundardóttir, húsfreyja á Dal í Rennisey, gift 2.6.1366

     m. Ingimundur Óþyrmisson, bóndi í Dal á Reynnisey á Rogalandi

10. Guðríður Ingimundardóttir, hirðstjórafrú á Strönd í Selvogi fædd í Noregi 1374

     m. Vigfús Ívarsson (Hólm) hirðstjóri 1390-1413  fæddur 1350-1402

11. Margrét Vigfúsdóttir, húsfreyja á Möðruvöllum, f.1406-1486

     m. Þorvarður Loftsson,,ríki,, höfðingi og stórbóndi á Möðruvöllum f.1410-1446

12. Guðríður Þorvarðardóttir, sýslumannsfrú í Teigi í Fljótshlíð og Strönd f. 1440

     m. Erlendur Erlendsson, sýslumaður í Rangárþingi f. um 1430-1495

13. Vigfús Erlendsson, hirðstjóri og lögmaður að Hlíðarenda í Fljótshlíð f.1466

     m. Guðrún Pálsdóttir, húsfreyja að Hlíðarenda f. 1480

14. Guðríður Vigfúsdóttir, húsfreyja í Ási, Holtum f. 1495-1570

     m. Sæmundur ,,ríki,, Eiríksson, Lögréttumaður í Ási, Holtum f. 1480-1552

15. Guðrún Sæmundsdóttir, húsfreyja á Hlíðarenda í Fljótshlíð f.1520-1596

     m. Árni Gíslason, sýslumaður á Hlíðarenda f. 1520-1587

16. Ingibjörg Árnadóttir, húsfreyja á Innra-Hólmi, Akraneshreppi f. 1550-1633

     m. Gísli Þórðarson, Lögmaður sunnan og vestan, Innra-Hólmi f. 151545-1619

17. Ástríður Gísladóttir, húsfreyja á Haga, Barðaströnd f.1583-1644

     m. Jón ,,eldri,, Magnússon, sýslumaður í Dalasýslu, bjó á Haga. f.1566-1641

18. Ingibjörg Jónsdóttir, húsfreyja á Bæ í Hrútafirði, f.1615-1703

     m. Þorleifur Kortsson, lögmaður á Bæ í Hrútafirði. f. 1615-1698

19. Þórunn Þorleifsdóttir, húsfreyja á Möðruvöllum f.1655-1696

     m. Lauritz Hanson Scheving, Sýslumaður í Vaðlaþingi, bjó á Mörðuvöllum. f.1664-1722

20. Hannes Lauritzson Scheving, Sýslumaður á Munkaþverá í Eyjafirði. f. 1694-1726

     m. Jórunn Steinsdóttir, biskups, húsfreyja að Munkaþverá f. 1699-1775

21. Þórunn Hannesdóttir Scheving, húsfreyja á Reynistað í Skagafirði f. 1718-1764, giftist síðar Jóni Steingrímssyni, ,,eldpresti,,

     m. Jón Vigfússon, Klausturhaldari á Reynistað í Skagafirði f. 1705-1752

22. Karítas Jónsdóttir Scheving, húsfreyja að Vatnsskarðshólum í Mýrdal f.1750-1800

     m. Þorsteinn Eyjólfsson, bóndi að Vatnsskarðshólum f. 1746-1834

23. Karítas Þorsteinsdóttir, húsfreyja að Brekkum í Mýrdal f. 1788-1844

     m. Jakob Þorsteinsson, bóndi að Brekkum III í Mýrdal f. 1778-1851

24. Þorsteinn Jakobsson, bóndi í Fjósum í Mýrdal f. 1812-1855

     m. Helga Þórðardóttir, húsfreyja í Fjósum í Mýrdal f. 1815

25. Guðrún Þorsteinsdóttir, húsfreyja í Fjósum í Mýrdal f. 1849-1881

     m. Hafliði Narfason, bóndi í Fjósum í Mýrdal f. 1838-1895

26. Guðlaug Helga Hafliðadóttir, húsfreyja í Dalseli, Eyjafjallahr. 1877-1941

     m. Auðunn Ingvarsson, kaupmaður og bóndi í Dalseli f. 1869-1961

 

 

 

 


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Ættfræði - framætt Bjarna Jónssonar í Þorkelsgerði

Set hér inn ættrakningu föður míns frá Sverri Noregskonungi til okkar, þar sem færslan fer sjálfrafa inn á Fésbókina mína og þaðan í ættarhópinn.

Ætt rakin frá Sverri Sigurðarsyni, Noregskonungi til Bjarna Jónssonar föðurafa okkar:

Sverrir konungur Sigurðarson varð frægastur fyrir þá sérstöðu meðal Noregskonunga, að ná völdum sem hann hafði sannarlega erfð til, með aðstoð jarðnæðislausra og kúgaðra bænda (Birkibeina) sem hann virkjaði og stjórnaði til sigurs síns og þeirra (1177-1184)

Sverrir konungur var sonur Sigurðar ,,munns,, Haraldssonar, Noregskonungs og Gunnhildar Sigurðardóttur. Afi Sverris var Haraldur ,,gilli,, Noregskonungur, Magnússonar ,,berfætts,, Ólafssonar Noregskonungs.  Þess má geta að Þóra dóttir Magnúsar ,,berfætta,, var Þóra, sem giftist Lofti presti í Odda, Sæmundssonar fróða.  Komu þau til Íslands 1135 með Jón son sinn 11.ára síðar goðorðsmanns í Odda.  Höfðu þau þá búið í um 12 ár að Konungshellu í Noregi. En hér er ættartalan:

1. Sverrir Sigurðarson Noregskonungur, f. um 1157-4.3.1202
    m. Ástríður Hróarsdóttir, ( Astrid Roesdatter) hjákona .
2. Hákon Sverrisson Noregskonungur f. um 1178-
    m. Inga frá Vartegi
3. Hákon Hákonarson (hinn gamli) Noregskonungur f.um 1204-14.12.1263    

 m. Kanga hin unga (hjákona)
4. Cecilía Hákonardóttir, síðar drottning Manar og Suðureyjar (um 1248)
    m. Herra Gregoríus (Gregorius Andresson) riddari, lenndur maður f. um 1200-

5. Sigríður Gregoríusdóttir Kanslara og barónsfrú í Noregi f. 1240
    m. Herra Gauti Erlingsson Kanslari Noregs 1276, Baron til Tolga

6. Hákon Gautason hirðmaður á Refi í Noregi (um 1260-1304)
    m. Hólmfríður Erlingsdóttir, húsfrú sama stað
7. Margrét Hákonardóttir, prófastfrú í Björgvin í Noregi, f. 1285
   m. Þorsteinn (míta) Hallgrímsson, prófastur við Postulakirkjuna í Björgvin
8. Önundur Þorsteinsson, að öðru leiti óþekktur f. 1315
9. Hólmfríður Önundardóttir. húsfreyja á Dal í Rennisey, gift 2.6.1366
    m. Ingimundur Óþyrmisson, bóndi í Dal á Rennisey á Rogalandi
10. Guðríður Ingimundardóttir, hirðstjórafrú á Strönd í Selvogi, fædd í Noregi 1374 -1436
       m. Vigfús Ivarsson (Hólm) hirðstjóri 1390-1413. f. 1350-1420
11. Margrét Vigfúsdóttir, húsfreyja á Möðruvöllum, f.1406. d. 1486
      m. Þorvarður Loftsson ,,ríki,, höfðingi, stórbóndi á  Möðruvöllum  f.1410-1446

12.  Guðríður Þorvarðardóttir, sýslumannsfrú í Teigi, Fljótshlíð og Strönd f.1440

        m. Erlendur Erlendsson, Sýslumaður í Rangárþingi f. um 1430-1495

13.  Þorvarður Erlendsson, lögmaður á Strönd í Selvogi f.1446-1513
       m. Margrét Jónsdóttir, systir Stefáns biskups, lögmannsfrú á Strönd f.1465
14.  Erlendur Þorvarðsson, lögmaður á Strönd, f. 1490-1576
       m. Þórunn Sturludóttir, frá Staðarfelli í Dölum, gift 1525
15.  Guðbjörg Erlendsdóttir, sýslumannsfrú f.1530
       m. Jón Marteinsson biskups, sýslumaður í Vaðlaþingi, Rangárþ. d.1604
16.  Sólveig Jónsdóttir, sýslumannsfrú að Nesi við Seltjörn f. nál. 1560
       m. Hákon Björnsson, sýslumaður að Nesi við Seltjörn, f. 1560-14.4.1643
17.  Þórunn Hákonardóttir, húsfreyja að Skógum undir Eyjafjöllum  f. 1580
       m. Kort Þormóðsson, klausturhaldari að Skógum undir Eyjafjöllum f.um 1580
18.  Katrín Kortsdóttir, prestfrú í Arnarbæli í Ölfusi f. nál .1620 gift 1644.d.1675
       m. Jón Daðason, prestur í Arnarbæli í Ölfusi  f.1606-3.1.1676

19.  Ingveldur Jónsdóttir, húsfreyja á Háeyri Eyrarbakka og víðar. f.um 1648

      m. Bergur Benediktsson, lögréttumaður í Árnesþingi, bjó á Háeyri. f.1642
20. Þorlákur Bergsson, hreppstjóri á Stóra Hrauni, Eyrarbakka f.1670 -1707
      m. Guðný Þórðardóttir, húsfreyja að Stóra Hrauni, Eyrarbakka f. 1676-1734
21. Bjarni Þorláksson, óðalsbóndi að Öndverðarnesi, Grímsnesi f. um 1703
      m. Ólöf Arngrímsdóttir, prests í Fljótshlíðarþingum, húsfreyja í Öndverðarnesi f. 1703
22. Arngrímur Bjarnason, bóndi í Bakkarholti Ölfusi um 1739 d. 29.1.1799
      Guðrún Jónsdóttir, húsfreyja í Bakkarholti f. 1749
23. Ingibjörg Arngrímsdóttir, húsfreyja að Nýabæ og Króki Ölfusi f.1792-1863
      m. Jón Jónsson, bóndi að Króki og Þorgrímsstöðum Ölfusi f. 1792-1863
24. Jón Jónsson, bóndi að Króki og Þorgrímsstöðum, Ölfusi f.1832-1882
      m. Valgerður Gamalíelsdóttir, húsfreyja í Króki og Þorgrímsstöðum f. 1837-1881
25. Bjarni Jónsson, bóndi í Þorkelsgerði í Selvogi f. 22.8.1877 d.22.4.1935
      m. Þórunn Friðriksdóttir, ljósmóðir og húsfreyja í Þorkelsgerði f.6.10.1899 d.25.3.197526.

 26.  Konráð Bjarnason, fræðimaður f. 25.7.1915 -d. 21.8.2000
      m. Guðrún Ingibjörg Auðunsdóttir, húsmóðir f. 2.6.1918 d.1.5.1987
27. Guðlaug Helga Konráðsdóttir f. 20.02.1952

 

 


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Enn syngur vornóttin..

 Vornótt í Reykjavík

Það er óvenjulegt að fá svona veðurblíðu í maímánuði á seinni árum  Ég verð sentimental og hugsa um ljóð Tómasar Guðmundssonar um vornóttina:

 ,Enn syngur vornóttin vögguljóð sín.

Veröldin ilmar, glitrar og skín.

Kvöldsett er löngu í kyrrum skóg.

Öldurnar sungu sig sjálfar í dá.

Síðustu ómarnir ströndinni frá

hurfu í rökkurró.

Mannstu það ást, mín, hve andvakan var

yndisleg forðum ? Hamingjan bar

ljóð okkar vorlangt á vængjum sér.

Brosmilt og þaggandi lágnættið leið.

Ljósið, sem dagsins á tindunum beið,

fann þig í fangi mér.

Vaki ég enn meðan vornóttin skín.

Veit mig þó bundinn annari sýn.

Stundir, sem hníga í haustsins slóð,

láta við eyrum mér andvöku hljótt.

Öðrum en þér flytur vorið í nótt

ilm sinn og ástarljóð.

 

 

 


Veikindafrí

Uppskurður

Það er best að setja hér inn á bloggið framhald sjúkrasögu minnar á þessu herrans ári 2009.  Ég hef sem sagt farið til taugaskurðlæknis, sem sýndi mér myndirnar af brjósklosinu mínu.  Það er merkilegt að sjá þetta í tölvunni og hægt að stækka og snúa myndunum á alla kanta.  Hann ráðlagði mér eindregið að láta fjarlægja þetta, þar sem það þrýstir á taugar sem liggja niður í fót.  Vildi helst taka mig í aðgerð strax í vikunni á eftir, en ég var ekki tilbúin einhvernvegin.  Að leggjast undir hnífinn er eitthvað svo mikil ákvörðun.  Svo hugsaði ég málið.  Ég hef tekið verkjalyf og svo lyf sem taugaskurðlæknirinn skaffaði og hef með því móti getað unnið svona næstum allan daginn.  En ekki allan. Þegar klukkan er langt gengin þrjú á daginn, er ég alveg búin og fer heim.  Það er engin framtíð í svona lífi og ég játaði mig sigraða og hringdi í lækninn á miðvikudaginn.  Hafði fengið mikla hvatningu frá ættingjum og vinum um að láta bara drífa í þessu.  Læknirinn var ekkert að tvínóna við þetta og ég var boðuð í innskrift í dag og uppskurð á mánudaginn, takk fyrir.   Ég mæti eldsnemma og fer heim daginn eftir.  Þarf síðan að vera heima í 4-6 vikur.  Hef bara hugsað mér að hafa tölvuna hjá mér í rúminu og get þá svarað pósti og svona.   Sick

Ég fór með litlu ömmudrengina mína á Kardemommubæinn þann 15 mars s.l. og það var algjört ævintýri að vera með þeim í leikhúsinu og sjá þessa frábæru sýningu.  Við vorum á 2. bekk og þeir skemmtu sér konunglega. Sá elsti hafði mestan áhuga á hljómsveitinni í gryfjunni, enda vel í návígi,  sá yngsti var hálf skelkaður við ljónið en miðdrengurinn bara elskar leikhús.  Augun ljóma og hann drekkur í sig allt sem fram fer á sviðinu.  Bara ógleymanleg leikhúsferð Smile

Kardemommubærinn

Kæru vinir og vandamenn - hafið það sem best og njótið páskanna. 


Brjósklos

Bakverkurinn

Þá er búið að finna út hvað er að bakinu mínu. Ég fór sem sagt til sérfræðingsins og hann sendi mig í segulómun og röntgen.  Honum fannst þessar myndir úr tölvusneiðmyndartækinu ekki ná yfir allt bakið.   Niðurstaðan úr þessari segulómun er, að ég er með stórt brjósklos milli 2 og 3 lendarliðar. Þessi elskulegi læknir sendi mér póst um niðurstöðuna í dag og hringdi svo í kvöld heim til mín.   Hann vill láta fjarlægja það og tæknin í dag er víst orðin svo mikil að taugaskurðlæknar gera gat á bakið og búmmm ! farið ! Frown    Sérfræðingurinn minn gerir ekki þessa aðgerð sjálfur en ætlar að senda beiðni til taugaskurðlæknis um að taka við mér.   Eftir að hafa verið frekar heilsuhraust alla tíð er skrýtið að vera að ganga á milli lækna í margar vikur.  Eitthvað svo óraunverulegt.  En verkirnir eru svo sannarlega raunverulegir og þreytandi.  

Ég nenni ekki að tala meira um þetta, en fannst ágætt að setja þetta hér niður á bloggið mér til minnis um dagsetningar upp á seinni tíma.

Set hér inn mynd af ömmudrengjunum mínum. Hún gleður mig í hvert sinn sem ég skoða hana.Smile

Stoltir strákar

 

 


Í byrjun Góu

Fjallkonan 1866

Síðasta bloggfærsla var skrifuð á konudaginn eða fyrsta dag góu. Góa hefst í átjándu viku vetrar og voru veðrabrigði oft kennd við þessi tímamót.  Það er merkilegt að Sighvatur Árnason alþingismaður, góðvinur afa í Dalseli, gerði veðurathuganir á árununum 1840 - 1900 og birti í Skírni 1907.  Þar segir hann um þennan veðurspádóm:

Þau árin, 6 að tölu, á þessu árabili, sem Góan var einmuna góð, stundum greri jörð, þá rættist þetta þannig, að tíðarfarið breyttist alltaf til hins verra á næstu mánuðum (Einmánuði og Hörpu) en þó einkum 3 árin í alvarleg harðindi.

Mig minnir að það hafi verið kalt á öskudaginn. Allavega var ömmudrengnum mínum það kalt að hann var ekkert lengi í þessum sníkjum, sem eru víst orðin hefð á Íslandi að bandarískum hrekkjavökusið.  Það er sagt að öskudagur eigi sér átján bræður og víst er að nú er kalt í Hlíðunum allavega.  

Vikan hefur verið alveg þokkaleg með hefðbundnum matseðli föstuinngangs fram á fimmtudag, en þá var pasta og pizza í kvöld.   Hvernig hægt er að stökkva svona úr íslenskum þjóðarréttum yfir í þá ítölsku  er mér hulin ráðgáta.  En svona var þetta samt.  Bakið er enn að drepa mig og ég verð voða fegin að fara í seinni myndatökuna á miðvikudaginn og fá þá niðurstöðu um meðferð.  Ég er hundþreytt á þessum stöðugu verkjum, en herði upp hugann og hugsa um fólk sem á miklu meira bágt en ég.  Dóttir mín gaf mér bók í afmælisgjöf sem ég er að byrja að lesa.  Hún heitir ,, A purpose driven life,, eftir Rick Warren og hefur verið þýdd á íslensku undir heitinu  Tilgangsríkt líf.  Ég hef nú mest lesið krimma og ævisögur undanfarið þannig að þetta er ágætis tilbreyting. 

Í tilefni konudagsins á sunnudaginn var og í byrjun Góu, er við hæfi að setja inn Minni kvenna eftir þjóðskáldið Matthías Jockumson:

Fósturlandsins Freyja,
fagra vanadís,
móðir, kona, meyja,
meðtak lof og prís!
Blessað sé þitt blíða
bros og gullin tár;
þú ert lands og lýða
ljós í þúsund ár!

Ætla að hafa það rólegt um helgina og hugsa inná við.Smile


Sunnudagsblogg í föstuinngangi

 

Afmælisblóm 

Í dag er konudagur og sunnudagur fyrir föstuinngang.  Ég fékk ekki blóm í dag en auðvitað á ég enn blóminn sem ég fékk á föstudagsmorguninn.  Yndislegur blómvöndur með rósum og kóngaliljum og hann mun gleðja mig fram í næstu viku sem kennd er við föstuinngang með bolludegi, sprengidegi og öskudegi.   Það má rekja þessa föstugleði til kaþólsku kirkjunnar og tengist kirkjulegri iðrun.  Menn gengu fram fyrir prest sem dreifði ösku yfir kirkjugesti og var tilgangurinn að afmá syndir viðkomandi. Þeir sem voru hræddir um að fá ekki fyrirgefningu synda sinna, flengdu sig með vendi.   Langafasta var þá tími föstu og hugleiðinga um bætt líferni.  Ekki mátti borða kjöt í föstumánuðinum og haldnar voru kjötkveðjuhátíðir um allan hinn kaþólska heim.  Svo er enn í dag.

Ég mun að sjálfsögðu kaupa bollur í dag, því ég er ekki mjög flink í vatnsdeigsbollu bakstri.  Svo verða bollur í kvöldmatinn annað kvöld.  Ég er ekki búin að ákveða hvort ég verð með fiskibollur eða kjötbollur.  Þá þarf að útvega sér gott saltkjöt fyrir þriðjudaginn og leggja baunir í bleyti.  Kannski þarf ekkert að leggja þessar baunir í bleyti lengur, ég bara geri það af því að mamma gerði það alltaf.   Ég set hvítlauk og beikon í baunasúpuna, nokkuð sem mamma hefði aldrei gert en mér finnst gott.  Eftir þessa veisludaga á maður náttúrlega að borða eingöngu fisk fram að páskum , en ég klikka alltaf á því. 

Farin út að kaupa bollur og saltkjöt Smile

Karnival í Rio

 


Verkjavæl ofl

Mikael Jafet bronsverlaunahafi í Judo

Ég hef ekkert bloggað um daglegt líf undanfarið.  Ástæðan er sú að ég get svo lítið setið við tölvuna vegna baksins og samkvæmislífið er í aljöru fríi.  Búin að fara í tölvusneiðmyndatöku og fer til bæklunarlæknis á fimmtudaginnSick Virðist sem þetta sé eitthvað liðbolaskrið en það kemur betur í ljós þegar ég hitti sérfræðinginn. Það er ótrúlegt að upplifa það að geta bara ekki gert hvað sem er. Og alltaf þessi brennandi sársauki, svona eins og vondir verkir í baki þegar maður fæðir barn Blush En nóg um það,  margir eru miklu verr haldnir en ég.  Lífið gengur sinn vanagang þrátt fyrir allt.  Ömmudrengurinn minn tíu ára, vinnur til verðlauna á hverju júdómótinu á fætur öðru.  Hann byrjaði í haust og hefur náð ótrúlegum árangri finnst stoltri ömmunni.  Menningarviðburðir hafa farið framhjá mér,  en stefnt er að því að fara með alla drengina á Kardimommubæinn 15 mars.  Móðir þeirra var glaður þátttakandi í þeirri frábæru sýningu fyrir 25 árum og ég bíð spennt eftir upplifun drengjanna á þessu frábæra leikriti Egners.

Ég hef hins vegar legið á hitapoka og horft á Inspector Morse diskasafnið mitt til skiptis við Húsbændur og Hjú.  Þá á ég von á að taka næst fyrir Löður þættina sem ég hlakka til endurnýja kynnin við.  Ég bara get ekki horft á þessar niðurdrepandi fréttir af stjórnmálunum og efnahagsumræðu  dag eftir dag.  Flý frekar veruleikan um stund með því að hverfa aftur í tímann og horfi á þessa gömlu gullmola.  Ég væri samt alveg til í að fara til Tenerife í viku - ef einhver vildi bjóða mér Smile  Ætli séu ekki til svona ferðir til baklækninga ?Wink   Ég fer í vinnuna á hverjum degi en oftast er ég alveg búin á því um hádegi, hef þá farið heim og skellt í mig verkjatöflum og sofnað.

Nú er ég nýkomin heim, tók töflu og fer í rúmið.....ZZZZZ

 


Afi í Dalseli

                                                            

Afi í Dalseli

Móðurafi minn, Auðunn Ingvarsson var fæddur í Neðra Dal, V-Eyjafjallahreppi 6. ágúst 1869.  Foreldrar hans voru hjónin Ingvar Hallvarðsson f. 8.1.1839 bóndi að Neðra Dal og Ingibjörg Samúelsdóttir f. 26.11.1836.  Ingvar Hallvarðsson var ættaður úr Mýrdalnum en Ingibjörg Samúelsdóttir var frá Syðstu Mörk.  Föðurafi Ingibjargar Samúelsdóttur var Páll Árnason f. 1787 þjóðhagasmiður sem kallaður var ,, hinn dverghagi,, bóndi í Syðstu Mörk og Hamragörðum undir Eyjafjöllum.

Auðunn ólst upp í Neðra Dal ásamt systkinum sínum,  en hann var næst elstur fjögra alsystkina sinna.  Hann var snemma athugull og hélt veðurdagbók frá tíu ára aldri og alla æfi.  Dagbækur hans eru nú varðveittar að Héraðasafninu að Skógum.    Auðunn kvæntist 1897 Guðrúnu Sigurðardóttur frá Seljalandi f. 1874, en Guðrún lést eftir tveggja ára hjónaband.  Þeirra sonur var Markús f. 1898 sem var á öðru ári er móðir hans lést.  Mikill harmur var kveðinn að Auðunni við missir eiginkonunar og fluttist hann með son sinn og Ingibjörgu systur sína að Neðra Dal í Biskupstungum.  Hann undi sér ekki lengi í Tungunum og seldi jörðina ári síðar og festi kaup á jörðinni Eyvindarholti undir Eyjafjöllum.  Hann hafði makaskipti á þeirri jörð við Sighvat Árnason, alþingismann og fékk Dalsel í staðinn. 

Auðunn gerðist brátt umsvifamikill bóndi í Dalseli og árið 1902 kvænist hann Guðlaugu Helgu Hafliðadóttur f. 1877 frá Fjósum í Mýrdal.  Hann fær verslunarleyfi hjá Einari Benediktssyni, skáldi og sýslumanni Rangæinga árið 1905 og stofnar verslun í Dalseli.  Um áramótin 1906 - 07 lætur hann sækja sér efni til húsbyggingar og reisir þeim myndarlegt tvílyfti hús, sem þjónaði margþættu hlutverki sem verslun og gestamóttaka í þjóðbraut og heimili fyrir ört stækkandi fjölskyldu hans og vinnufólk.  Í manntalinu 1910 má sjá að hann hefur haft fjóra vinnumenn.

Hann rak ásamt versluninni stórt bú og í suðurherbergi á loftinu í Dalseli var útbúin skólastofa sem þjónaði lengi sem farskóli. Það var því oft mannmargt í Dalseli.  Auðunn var mikill áhugamaður um tónlist og til marks um þann áhuga má nefna að á Alþingishátíðinni 1930 var flutt þangað  forláta píanó til undirleiks tónlistaratriða.   Að hátíðinni lokinni keypti Auðunn píanóið,  greiddi út í hönd og lét flytja að Dalseli. Söngur og hljóðfærasláttur var í hávegum hafður á heimilinu og synir hans Leifur og Valdimar spiluðu á harmonikkur við góðan orðstír og voru þekktir á Suðurlandi undir nafninu Dalselsbræður.

Auðunn var framfarasinnaður mjög og keypti fljótlega bíla sem notaðir voru bæði til heyskapar og skemmtiferða.  Synir hans fóru fyrstir mann á bíl inn í Þórsmörk, má sjá myndir úr þeirri ferð á Samgöngusafninu að Skógum.   Auðunn var mikill Sjálfstæðismaður og gistu jafnan í Dalseli þingmenn á yfirreið og frammámenn flokksins.  Heimilið var í þjóðbraut, þar til Markarfljótsbrúin var vígð árið 1934,  en Auðunn var alla tíð á móti staðsetningu hennar og vildi að brúað yrði á þeim stað sem hin nýja Markarfljótsbrú var lögð fimmtíu árum seinna. 

Auðunn og Guðlaug í Dalseli eignuðust ellefu börn :

Guðrún f. 1903 skáld og húsfreyja í Stóru Mörk

Ólafur Helgi f. 1905 bifreiðastjóri í Reykjavík

Leifur f. 1907 bóndi að Leifsstöðum

Hafsteinn f. 1908 bifreiðastjóri í Reykjavík

Ingigerður Anna f. 1909 skrifstofustúlka í Reykjavík

Hálfdan f. 1911 bóndi að Seljalandi

Margrét f. 1912 húsfreyja í Fljótshlíðarskóla

Sighvatur f. 1913-1914

Valdimar f. 1914 bifreiðastjóri, harmónikuleikari og bóndi að Grenstanga

Konráð Óskar f. 1916 bóndi að Búðarhóli

Guðrún Ingibjörg (Donna) f. 1918 húsfreyja síðast í Hafnarfirði.

Markús Auðunsson elsti sonur Auðuns af fyrra hjónabandi lést 1926 aðeins tuttugu og átta ára að aldir og var öllum harmdauði er hann þekktu.  Hann var ljósmyndari og mikill gleðigjafi sem systkini hans litu mjög upp til.  Guðlaug Helga eiginkona Auðuns lést árið 1941 eftir stutt veikindi 64 ára að aldri og var fráfall hennar honum mikið áfall.  Dætur hans Margrét og Donna tóku við húshaldinu þar til þær sjálfar stofnuðu heimili.

Auðunn brá búi á níræðisaldri og eyddi síðustu æviárum sínum hjá Leifi syni sínum og fjölskyldu hans að Leifsstöðum.   Hann lést á Sjúkrahúsi Suðurlands 10. maí 1961 - 97 ára að aldri.

Blessuð sé minning afa míns Auðuns í Dalseli.

 

 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband