Að kveðja jólin

 

 jólatré 08 -

 

Oftast hef ég tekið niður jólaskrautið strax daginn eftir þrettándann, en aldrei eins seint og nú.  Það er tíundi janúar í dag og ég er að taka saman alla fallegu jólahlutina mína og setja niður í kassa.  Sumir geta ekki beðið með að taka niður þetta ,, drasl.. en ekki ég.  Það verður allt svo tómt og hversdagslegt.  Nú finnst mér jafnvel erfiðara að pakka jólunum niður.  Þegar aðventan gekk í garð í síðasta mánuði voru margir þegar búnir að setja upp ljós og skeyta fyrr en venjulega.  Ég líka.  Það var bara þannig ástand í þjóðfélaginu að aðventan var kærkomin tími til að fá haldreipi í fasmótaða siði og  venjur.  Að allt væri eins og var áður.  En nú er komið nýtt ár, nýr tími, ný gildi. Ég vona að nýtt ár beri í skauti sínu gæfu fyrir okkur öll.  Að okkur takist að byggja upp sjálfsmynd okkar sem þjóðar.  Að ráðamenn setji í forgang að sameina okkur en ekki sundra.  Að skjaldborg verði slegið um heimilin í landinu, því börnin okkar og barnabörn eiga það skilið að finna að þau eigi öruggt skjól á viðkvæmasta aldurskeiði lífsins.

Ég kveð jólin með söknuði, en veit jafnvel að þau koma aftur í desember, með sinn frið,  gleði og ljós.   Ég hlakka til.

Jólaþorpið jólaljós í glugga

 


Þórunn Hannesdóttir Scheving

Ævisaga Jóns Steingrímssonar er merkileg heimild samtímamanns um Skaftárelda og móðuharðindin.  Ég glugga stundum í þá bók og líka fyrir það, að eiginkona hans, Þórunn Hannesdóttir Scheving er formóðir mín.   Jón lýsir hreinskilningslega í bókinni kynnum þeirra og ástum, en þau kynntust þegar Jón gerðist djákni á Reynistað.   Þá var Þórunn gift klausturhaldaranum Jóni Vigfússyni,  sem samkvæmt Jóni Steingrímssyni, barði konu sína iðulega í drykkjuköstum sínum, en var ljúfur sem lamb þess á milli. Minnir það óneitanlega á örlög annarrar formóður minnar í föðurætt, Þórdísi Jónsdóttur í Bræðratungu. En hún flúði ósjaldan undan junkernum Magnúsi í Bræðratungu í Skálholt til systur sinnar, er drykkjutúrar ans stóðu yfir.

Þórunn Hannesdóttir Scheving var fædd 28.08. 1718 og var stórættuð.   Hún var dóttir Hannesar Lauritsonar Scheving, sýslumanns á Munkaþverá og konu hans Jórunnar Steinsdóttur, biskups á Hólum.  Þótti mörgum hún hafa tekið niður fyrir sig er hún giftist Jóni Steingrímssyni.Jón Vigfússon lést er Þórunn bar yngsta barn þeirra undir belti og  tók Jón Steingrímsson að sér að hugga hana, að ráði þjónustustúlku sinnar eins og segir í ævisögu hans. Þórunn átti  3 börn með Jóni Vigfússyni er upp komust. Yngsta barnið Karítas Jónsdóttir Scheving, sem fæddist eftir dauða föður síns, flutti  með móður sinni og Jóni Steingrímssyni, suður að Prestbakka eftir giftingu þeirra. Jón Steingrímsson og Þórunn Hannesdóttir Scheving eignuðust 5 dætur saman og er mikill ættbogi frá þeim kominn.

Af Karítas Jónsdóttur Scheving er það að segja að hún giftist Þorsteini Eyjólfssyni á Vatnskarðshólum. En Jón Steingrímsson segir í ævisögu sinni að hún hafi látið ,, fallerast,, með honum og það hafi valdið Þórunni konu sinni þungum raunum. En raunir Þórunnar vegna hinnar ættgöfugu  Karítasar voru auðvitað þær að henni var ætlað annað mannsefni en venjulegan bóndason.  Karítas Scheving var í föðurætt, komin af Jóni Vigfússyni Hólabiskup f. 1643 og í móðurætt af Jórunni Steinsdóttur, biskups.  En hjónaband Karítasar og Þorsteins var farsælt, og áttu þau 9 börn, þar á meðal Karítas Þorsteinsdóttur f. 1788 er giftist Jakobi Þorsteinssyni á Brekkum.Sonur þeirra var Þorstein Jakobsson f.1812 bóndi að Fjósum í Mýrdal er kvæntist Helgu Þórðardóttur Thorlacius.  Þeirra dóttir var Guðrún Þorsteinsdóttir f.1849 langamma mín.Þess má geta að Jón Steingrímsson var fæddur 10.09.1728  ef einhver vil rekja sig saman við hann.


Aftur til bloggheima

 

Í dag ákvað ég að fara að blogga aftur.  Eftir rúma tvo mánuði frá því að ég lokaði blogginu mínu, finn ég að ég sakna þessarar dægradvalar, sem gaf mér margar ánægjustundir á síðasta ári.  Þegar ég lokaði blogginu hurfu allar færslurnar mínar og nú byrja ég bara uppá nýtt á nýju ári. Þó ætla ég að setja inn aftur færslurnar um ættfræði og sitthvað sem ég vildi ekki henda. 

Af mér er helst að frétta að ég hef haft mikið að gera í vinnunni og hún tekið mest af tíma mínum síðustu tvo mánuði ársins.  Í miðjum jólaundirbúningi eða þann 17 des tókst mér að brenna nærri af mér hendina á heitri feiti og ekki í fyrsta sinn.  Það þýddi að ég var frekar fötluð í öllu sem þurfti að gera.  Var samt búin að pakka inn öllum jólagjöfum og skrifa á nokkur kort.  Elskulegur eiginmaður minn stóð við hlið mér eins og klettur og kláraði kortin og eldhúsið varð hans heimavöllur á einum degi InLove  Jólin liðu í friði og ró og áramótin einnig.  Þegar tveir dagar voru liðnir af nýja árinu tókst mér að festa mig í bakinu einhvernvegin þannig að ég var óvinnufær.  Læknar halda að þetta sé klemmd taug, einhverskonar ,, hekseskud,,  sem leiðir frá mjóbaki niður í fót.  Ekki akkúrat sem ég þurfti á að halda eftir brunameðferðina á hendinni. Blush  Ég er þó komin til vinnu og sting við fæti og er að detoxa mig niður af Parkótin Forte átinu.  Heilsugæsla Hlíðasvæðis er með stóran fæl um mig í tölvunni , bara frá 17 des til 2 jan.  

Annars bara góð á föstudagskvöldi á fyrsta bloggdegi þessa árs.


Haraldur Norðdahl - minning 4. apríl 2007

Þann 4. apríl 2007, hefði skólabróðir minn úr Garðabænum, Haraldur Norðdahl orðið 56 ára, ef hann hefði  lifað.  Hann lést af slysförum tæplega 16 ára gamall.  Ég hugsa alltaf til hans á þessum degi þó svo langt sé síðan hann fór. Halli var fæddur 4. apríl 1952 og lést 9. mars 1968 og var elsta barn foreldra sinna, þeirra Þórdísar Ólafsdóttur og Guðmundar Norðdahl.Þegar hann kom í skólann fylgdi honum ferskur blær, líka einhver spenna .  Hann var mikill húmoristi og hafði einstaka útgeislun. Stelpur voru skotnar í honum.  En það var tónlistin sem átti hug hans allan.  Á þessum tímum bítla  og stones voru stofnaðar hljómsveitir í bílskúrum út um allt land. Garðahreppurinn eins og Garðabær hét þá, var engin undantekning og Halli stofnaði hljómsveit.  Hún hét Táningar, við vorum jú bara táningar . Tempó var táningahljómsveit.   Er þetta orð yfirleitt notað í dag ? Ég heyri bara orðið ,,unglingar,,  Myndi virka að skíra hljómsveit Unglingar í dag ? held ekki.  En hljómsveitin Táningar var flott árið 1967 og hún var okkar.  Halli spilaði á Höfner fiðlubassa eins og Paul.  Steini Hraundal á rythma, og Ægir Ómar á sólógítar.  Úlfar Hennings var trommari. Þeir fengu að spila á skólaböllum og í pásu hjá frægari hljómsveitum eins og Bendix úr Hafnarfirði á árshátíðinni . Ég veit ekki hvar þeir spiluðu utan Garðabæjar en mér var sagt að Halli hefði skráð þá í FÍH til að geta spilað eftir taxta.  Sennilega fyrsta bítlahljómsveit með félagsskírteini þar.  Ég á enga mynd af Táningum lengur, en ég minnist þessara tíma með ljúfsárum trega.  Við vorum svo ung og glöð.  Sjoppan var okkar félagsmiðstöð, þar sem Ráða kallaði á okkur í símann og Þórður sópaði okkur út.   Við áttum lífið framundan, en ekki Halli.  Við vissum það ekki þá og þegar fregnin um andlát hans barst til eyrna, söfnuðumst við saman í sjoppunni.  Þögul og beygð, líka Þórður og Ráða og við vissum að við höfðum misst svo mikið.  Hann var harmdauði öllum þeim sem honum kynntust.  Blessuð sé minning Haraldar G. Norðdahl.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband